Hálsband með yoyo kortafestingu
Þægileg og praktísk lausn fyrir aðgangskort og starfsmannaskírteini!
Vandað hálsband með yoyo kortafestingu og öryggissmellu sem sameinar þægindi, öryggi og faglegt útlit. Hálsbandið er úr mjúku, ofnu efni og hentar vel til daglegrar notkunar. Yoyo kortafestingin er úr slitsterku, styrktu næloni (reinforced nylon) sem tryggir góða endingu.
Yoyo festingin gerir auðvelt að skanna eða sýna aðgangskort án þess að taka það af hálsinum. Kortið dregst sjálfkrafa til baka eftir notkun og er því alltaf innan seilingar. Öryggissmella á hálsbandinu opnast við átak og eykur öryggi notandans.
Hálsbandið er til á lager í svörtu og hægt er að sérmerkja yoyo festinguna. Hagnýt og hagkvæm lausn fyrir fyrirtæki og stofnanir sem vilja sameina notagildi og faglega ásýnd.
Helstu eiginleikar:
- Hálsband: Sívalt, ofið band (tubular lanyard).
- Stærð: 900 × 12 mm.
- Litur: Svartur.
- Yoyo kortafesting: Úr slitsterku, styrktu næloni (reinforced nylon).
- Útdraganleg festa: Dregst sjálfkrafa til baka eftir notkun.
- Öryggissmella: Opnast við átak og eykur öryggi.
- Losanleg plastsmella: Auðveldar að aftengja kortafestinguna.
- Merking: Hægt að sérmerkja yoyo festinguna.
Tilvalið fyrir fyrirtæki, stofnanir, ráðstefnur, sýningar og viðburði
Stærri pantanir eða séróskir?
Vantar þig ráðgjöf eða tilboð í stærra magn? Heyrðu í okkur, við svörum hratt.
