Golfboltar Titleist „Pro V1“
900 kr.
Pro V1 er hin fullkomna blanda sem skilar löngum höggum og nákvæmri stjórn á boltanum. Þetta gerir þennan bolta að fyrsta vali fyrir þá kröfuhörðustu. Þetta er jafnframt sú týpa sem er algengust í golfheiminum.
Af hverju að velja Pro V1? Mælt er með Pro V1 fyrir spilara sem vilja miðlungshátt flug á boltanum, mjög lítinn spuna í löngu höggunum en engu að síður mikinn spuna í stutta spilinu. Þá gefur boltinn mýkri tilfinningu í högginu.
Lágmarkspöntun er 24 stk. Panta þarf í margfeldi af 12 (t.d. 24, 36, 48…).
Stærri pantanir eða séróskir?
Vantar þig ráðgjöf eða tilboð í stærra magn? Heyrðu í okkur, við svörum hratt.





