Bros auglýsingavörur
Árið 1993 sérmerktum við fyrsta stuttermabolinn, síðan þá hafa liðið mörg ár. Í gegnum árin hefur reksturinn þróast með viðskiptavinum okkar og með þeim höfum við aukið við þekkinguna, safnað í reynslubankan og stækkað vöruúrvalið. Í dag erum við sérhæfð í sölu á merktum auglýsingavörum og fatnaði.
Bros hefur yfir að ráða framúrskarandi starfsfólki og úrvals birgjum en meðal þeirra eru Fruit of the Loom, Russell, Continental Clothing og Mid Ocean Brands.
Merktar auglýsingavörur eru gott krydd í markaðsstarfið, þær styrkja og styðja við ímynd fyirtækja. Við bjóðum lítríkt úrval af vönduðum vörum fyrir öll tilefni. Okkar hlutverk er að veita viðskiptavinum framúrskarandi þjónustu og vandaðar vörur, hvert sem tilefnið er.